3. júlí 2015
3. júlí 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kærðir fyrir of hraðan akstur
Sextán ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ökumaðurinn var ekki með ökuskírteini sitt meðferðis. Hans bíður 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá var nokkuð um að ökumenn sinntu ekki stöðvunarskyldu eða töluðu í síma án handfrjáls búnaðar.
Lögregla minnir ökumenn á að halda bensínfætinum hæfilega þungum og virða aðrar umferðarreglur.