Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. júlí 2003

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kærð misneyting

Kona um tvítugt kærði kynferðislega misneytingu þriggja manna á svipuðu reki sem átt hafi sér stað í húsi í Bolungarvík aðfaranótt 13. júlí sl., en vegna ölvunar hafi hún ekki getað spornað við verknaðinum.

Fimm dögum eftir atvikið leitaði hún til neyðarmóttöku í Reykjavík fyrir þolendur kynferðisbrota og lagði í framhaldinu fram kæru hjá lögreglunni í Reykjavík, sem að lokinni skýrslutöku sendi það lögreglunni í Bolungarvík. Þar hafa verið teknar skýrslur af vitnum og meintum gerendum, sem allir neita sök. Að rannnsókn lokinni verður málið sent embætti ríkissaksóknara.