Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2005

Þessi frétt er meira en árs gömul

Jólagetraun 2005

Hin árlega jólagetraun, samstarfsverkefni Umferðarstofu, Sveitarfélaganna og lögreglunnar er í fullum gangi þessa dagana. Getraunin er ætluð börnum í 1.-5. bekk grunnskólana. Eins og undanfarin ár verða dregnar út um 300 bækur hjá lögreglunni í Reykjavík. Verðlaunin að þessu sinni er sagan af Nonna og Manna, Silungsveiðin, í endursögn Brynhildar Pétursdóttur. Þær bækur sem fara til barna í Reykjavík voru áritaðar í morgun á lögreglustöðinni við Hverfisgötu af Borgarstjóranum í Reykjavík frú Steinunni Valdísi Óskarsdóttir og Lögreglustjóra í Reykjavík herra Böðvari Bragasyni.

Stella Mjöll Aðalsteisdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Böðvar Bragason

og Hildur Rún Björnsdóttir