Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. nóvember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Jafnlaunastefna embættis Lögreglustjórans á Suðurlandi uppfærð

Komið er að árlegri milliúttekt jafnlaunavottunar embættis Lögreglustjórans á Suðurlandi. Í tengslum við hana hefur jafnlaunastefna embættisins verið yfirfarin og endurbætt og gefin út á ný af yfirstjórn embættisins. Sem fyrr er meginmarkmið jafnlaunavottunar að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunastjórnunarkerfið , sem unnið er eftir jafnlaunastaðli IST 85, hefur reynst verðmætt verkfæri við launasetningu starfsmanna og eykur á trúverðugleika þeirra ákvarðana sem teknar eru og tengjast launasetningu þeirra.

Jafnlaunastefnuna má nálgast hér