10. desember 2019
10. desember 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Jafnlaunastefna embættis Lögreglustjórans á Austurlandi
Á þessu ári hefur verið unnið að undirbúningi jafnlaunavottunar við embætti Lögreglustjórans á Austurlandi. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Vottunin byggir á jafnlaunastaðli IST 85.
Jafnlaunastefnu embættisins má sjá á vef lögreglunnar hér: Jafnlaunastefna