4. nóvember 2026
4. nóvember 2026
Ísland.is styður nú Google Pay
Á Ísland.is er nú hægt að greiða fyrir þjónustu með Google Pay.

Greiðslumátinn bætist við þá sem fyrir eru og gerir notendum kleift að ljúka greiðslum á einfaldan og þægilegan hátt, án þess að þurfa að slá inn kortaupplýsingar í hvert sinn.
Google Pay er í boði fyrir notendur sem hafa skráð greiðslukort í Google Wallet. Þegar kemur að greiðslu á Ísland.is er Google Pay valið sem greiðsluleið og greiðslan staðfest.
Um 150.000 greiðslur fara í gegnum Ísland.is á hverju ári, meðal annars vegna vegabréfa, vottorða og ökuskírteina. Nýi greiðslumöguleikinn einfaldar greiðsluferlið og sparar notendum tíma og fyrirhöfn.
Markmið Stafræns Íslands er að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum fjölbreyttar greiðsluleiðir sem mæta ólíkum þörfum. Auk Google Pay er nú hægt að greiða með Apple Pay, kredit- og debetkortum, beinum millifærslum og í sumum tilvikum með kröfu í heimabanka.