Fara beint í efnið

22. maí 2026

Ísland.is styður nú Apple Pay

Á Ísland.is er nú hægt að greiða fyrir þjónustu með Apple Pay

Skjáskot af Ísland.is

Greiðslumátinn bætist þannig við þá sem fyrir eru og einfaldar fólki að ljúka greiðslum með nokkrum smellum.

Um 150.000 greiðslur fara í gegnum Ísland.is á ári hverju, til dæmis vegna vegabréfa, vottorða og ökuskírteina. Það er því mikill tímasparnaður fólginn í einfaldri nýrri virkni.

Apple Pay er í boði fyrir öll Apple-tæki. Það eina sem þarf að gera er að skrá greiðslukort í Apple Pay.

Markmið Ísland.is er að einstaklingar og fyrirtæki geti greitt ríkinu með sem fjölbreyttustum hætti og mun Google Wallet bætast við síðar á árinu svo Android-notendur geti notið sömu þæginda. Þá er einnig væntanleg tenging við nýja íslenska greiðslulausn, Blikk.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.