Fara beint í efnið

2. nóvember 2022

Innheimtugagnavinnslu lögaðila árið 2022 vegna tekjuársins 2021 er lokið

Fjársýslan hefur undanfarið unnið að Innheimtugagnavinnslu lögaðila í samvinnu við Skattinn.

Fjársýslan PP 2

Fjársýslan hefur undanfarið unnið að Innheimtugagnavinnslu lögaðila í samvinnu við Skattinn. Í vinnslunni eru lagðir á skattar samkvæmt framtali á aðila í atvinnurekstri (lögaðila). 

Innheimtu- og álagningarseðla er hægt að nálgast á www.island.is og á www.skattur.is  Greiðsluseðlar vegna álagningar hafa verið birtir á Ísland.is og sendir til skeytamiðlunar fyrir þá lögaðila sem nýta sér þá þjónustu.

Þriðjudaginn 1. nóvember voru greiddar út inneignir að upphæð  18,1 milljarðar til rúmlega 6 þúsund lögaðila, engum greiðslum var hafnað.

Inneignir upp á kr. 2,2 milljarða verða greiddar út síðar.

Nánari upplýsingar um greiðslustöðu veita Innheimtumenn ríkissjóðs en um álagninguna Skatturinn.