Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. ágúst 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Innbrotsþjófar handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í fyrrakvöld, eftir ábendingu árvökuls borgara, þrjá menn af erlendum uppruna grunaða um að hafa brotist inn í hús í miðborg Reykjavíkur.

Í framhaldi af handtöku mannanna voru framkvæmdar húsleitir þar sem fannst töluvert magn skartgripa, tölvubúnaðar, myndavéla og fleira. Búið er að tengja hluta hinna haldlögðu muna við innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu.

Í gær handtók lögregla karl og konu af erlendum uppruna sem reynt höfðu að koma stolnum skartgripum í verð á höfuðborgarsvæðinu, sömuleiðis eftir ábendingu frá borgara. Í framhaldi af handtökunni var farið í húsleitir þar sem talsvert magn þýfis fannst. Það hefur verið tengt við nokkur innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem handteknir voru í fyrrakvöld og í gær tengjast innbyrðis.