Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. mars 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Innbrot og þjófnaðir

Brotist var inn í þrjá bíla á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt en þeir voru staðsettir í Kópavogi, Árbæ og miðborginni. Radarvara var stolið úr einum og fartölvu úr öðrum en loftljóss var saknað úr þeim þriðja. Þá voru verkfæri tekin úr nýbyggingu í Breiðholti og lyftur og tröppur hurfu úr gámum í Kópavogi.

Tvær níu ára stúlkur voru staðnar að hnupli í matvöruverslun og 18 ára piltur var tekinn fyrir sömu iðju á bensínstöð í austurborginni. Á annarri bensínstöð fór ökumaður á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið sem hann tók. Veski var stolið frá konu í verslunarmiðstöðinni í Mjódd og í Kringlunni varð önnur kona fyrir þeirri sömu óskemmtilegu reynslu. Þá var peningum stolið frá hótelgesti í borginni.