Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. mars 2026

Innbrot í verslun upplýst

Í síðustu viku var tilkynnt um innbrot í verslun í umdæminu rétt eftir miðnætti. Á leiðinni á vettvang sáu lögreglumenn tvo aðila sem gengu rösklega í áttina að tilteknu húsnæði.

Skömmu seinna voru mennirnir tveir handteknir vegna gruns um aðild að innbrotinu en við handtökuna höfðu þeir peningaseðla og fíkniefni á sér.

Við leit á vettvangi þar sem aðilarnir voru handteknir fundust munir sem búið er að staðfesta að eru úr innbrotinu í verslunina.