Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Innbrot í Grafarvogi upplýst

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst um tug innbrota í heimahús í Grafarvogi í Reykjavík. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar í síðustu viku og sátu tveir þeirra í gæsluvarðhaldi um tíma. Mennirnir, sem hafa áður komið við sögu hjá lögreglu en mismikið þó, játuðu allir aðild sína að innbrotunum. Þeir stálu m.a. myndavélum, fartölvum, símum, sjónvörpum, rafmagnsverkfærum, skartgripum og peningum. Tekist hefur að endurheimta hluta af þýfinu. Innbrotin voru framin á nokkurra vikna tímabili. Handtöku þjófanna má þakka árverkni ónefnds íbúa en sá lét lögregluna vita um grunsamlegar mannaferðir og þar með komst hún á sporið með fyrrgreindum árangri.