Fara beint í efnið

18. september 2026

Innbrot í eldisbú upplýst

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugrís á Kjalarnesi, Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi.

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað umrædd brot.

Innbrotið í Dalsbú í Mosfellsdal er enn til rannsóknar og miðar rannsókninni vel.

Frekari upplýsingar um Dalsbú verða ekki veittar að svo stöddu.