28. júlí 2008
28. júlí 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Innbrot í bíla
Brotist var inn í sex bíla víðsvegar í Reykjavík um helgina og úr þeim stolið ýmsum munum. Á sama tímabili var þremur bílum stolið á höfðuborgarsvæðinu en í tveimur þeirra voru kveikjuláslyklar skildir eftir af eigendum eða umráðamönnum ökutækjanna og því voru hæg heimatökin hjá þjófunum.
Lögreglan vill ítreka það við ökumenn að skilja ekki kveikjuláslykla eða verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.