11. apríl 2011
11. apríl 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Innbrot í bíla
Brotist var inn í sjö bíla í Reykjavík um helgina. Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum, töskum og geislaspilara en þjófarnir voru á ferðinni í Grafarvogi, Hlíðunum og vesturbænum. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.