17. mars 2011
17. mars 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Innbrot í bíla
Brotist var inn í fimm bíla í Reykjavík í nótt. Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum og fartölvum en þjófarnir voru á ferðinni í miðborginni, vesturbænum og Skerjafirði. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.