6. mars 2018
6. mars 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Innbrot – áframhaldandi gæsluvarðhald til 20. mars
Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 20. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku í þágu rannsóknar lögreglu á innbrotum í umdæminu. Annar maður, sem var handtekinn af sama tilefni, hefur verið úrskurðaður til að sæta vistun í úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda til 20. mars.