Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. september 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Íkveikja í Krýsuvíkurkirkju – játning

Tveir piltar og tvær stúlkur á aldrinum 17-20 ára hafa játað að hafa kveikt í Krýsuvíkurkirkju í ársbyrjun en kirkjan gjöreyðilagðist í brunanum. Ungmennin helltu úr bensínbrúsa inni í kirkjunni og kveiktu í. Þau yfirgáfu síðan staðinn en höfðu jafnframt meðferðis smámynt sem þau stálu úr söfunarbauki Krýsuvíkurkirkju. Við yfirheyrslur hjá lögreglu kom fram að þau ætluðu sér að kveikja í einhverri kirkju en tilviljun virðist hafi ráðið því að Krýsuvíkurkirkja varð fyrir valinu. Ungmennin hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, mismikið þó.

Krýsuvíkurkirkja gjöreyðilagðist í brunanum.