14. janúar 2011
14. janúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Íkveikja – gæsluvarðhald til 18. janúar
Kona á þrítugsaldri hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 18. janúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Konan var handtekin í Hafnarfirði í nótt eftir að eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi í bænum en talið er að um íkveikju hafi verið að ræða. Nokkrar skemmdir urðu á íbúðinni en engan sakaði.