18. september 2026
18. september 2026
Hverju þarf að huga að þegar sjúkrahúsið flytur heim?
Guðný Stella Guðnadóttir, yfirlæknir, og Sæbjörg Másdóttir, teymisstjóri heimaspítala hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands fluttu erindi á málþingi í gær, fimmtudaginn 17. september, þar sem sjónum var beint að öryggi sjúklinga sem fá sjúkrahúsþjónustu á heimili sínu.

Í erindinu var fjallað um þá miklu umbreytingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu þegar meðferð og eftirfylgni færist í auknum mæli frá sjúkrahúsum yfir á heimili sjúklinga. Heimaspítali stuðlað að auknu sjálfstæði og dregið úr þörf fyrir innlagnir, en um leið þarf að tryggja að öryggi sjúklinga sé ávallt í forgrunni.
Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi þess að mæla og meta árangur nýrra þjónustuleiða. Þegar svo stórar breytingar eru gerðar á skipulagi heilbrigðisþjónustu þarf að liggja fyrir hvernig sýna megi fram á gæði þjónustunnar, hvaða mælikvarðar endurspegli öryggi sjúklinga best og hvernig fylgst sé með þeim til lengri tíma.
Fram kom að þróun heimaspítala kallar á nýja sýn á öryggismál þar sem meðferð fer fram utan hefðbundins sjúkrahúsumhverfis. Mikilvægt er að tryggja skýra samskiptaleið milli sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks, ásamt því að hafa markvissar verkferlar sem stuðla að öruggri og samfelldri þjónustu.
Erindið var hluti af dagskrá málþings sem Embætti landlæknis stóð fyrir í tilefni af alþjóðlegum degi sjúklingaöryggis 17. september 2026. Þema málþingsins var öryggi sjúklinga með langvinna sjúkdóma og komu þar saman sérfræðingar, stjórnendur og notendur heilbrigðisþjónustu til að ræða leiðir til að efla öryggi og gæði heilbrigðisþjónustu á Íslandi.