Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. september 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Húsleitir í Hafnarfirði. Fíkniefnamisferli.

Skömmu fyrir hádegi í dag var gerð húsleit í tveimur íbúðum í Hafnarfirði að fengnum dómsúrskurði þar um, vegna gruns um vörslu fíkniefna og sölu. Við leit fannst hass, amfetamín og LSD. Meint þýfi sem og hnífar, skotvopn og skotfæri fundust einnig á öðrum staðnum. Munir þessir voru haldlagðir.

Einn maður var handtekinn, karlmaður á sextugsaldri, og bíður hann yfirheyrslu.

Við aðgerðir þessar naut lögreglan í Hafnarfirði aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjórans, lögreglunnar í Kópavogi og starfsmanna tollgæslunnar.