7. nóvember 2014
7. nóvember 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Húsleit í Kópavogi – lagt hald á skammbyssu og stera
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á skammbyssu, sverð og exi, auk fleiri vopna, og talsvert magn stera í töflu- og vökvaformi við húsleit í Kópavogi í morgun. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, sem beinist að brotum á vopnalögum og sölu og dreifingu á steralyfjum. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði, en við aðgerðina naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.