Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hundur beit stúlku

Unglingsstúlka var bitin af hundi í Reykjavík í gær. Hún var á göngu í Bústaðahverfinu þegar þetta gerðist en hundurinn beit hana í höndina svo á sá. Þrátt fyrir leit lögreglu fannst hvorki hundurinn né eigandi hans en sá síðarnefndi var á vettvangi þegar atvikið átti sér stað.