15. september 2010
15. september 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hundur beit pilt í Mosfellsbæ
Piltur var bitinn af hundi í Mosfellsbæ í gærmorgun. Hann var á leið í skólann þegar þetta gerðist en pilturinn var bitinn í fótinn. Meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Ekki er ljóst hvað verður um hundinn.