28. febrúar 2023
28. febrúar 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
HSN hættir einkennasýnatökum vegna COVID-19
HSN hættir einkennasýnatökum vegna COVID-19 frá og með 1. mars 2023.

HSN hættir með einkennasýnatökur vegna COVID-19 frá og með 1. mars 2023.
Fyrir þá sem þurfa neikvætt COVID-19 próf vegna ferðalaga erlendis verður að bóka sýnatöku í gegnum vefinn travel.covid.is.
Þeim sem vilja staðfestingu um smit er bent á að notast við heimapróf, sem hægt er að kaupa í apótekum og stórmörkuðum.