Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. janúar 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðamyndavélar teknar í notkun í Fáskrúðsfjarðargöngum

Föstudaginn 18. janúar verða hraðamyndavélar í Fáskrúðsfjarðargöngum teknar í notkun. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og tilgangurinn að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.

Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna og á næstu vikum munu fleiri vélar bætast við á þjóðvegum landsins.

Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. Myndatakan hefur verið heimiluð af Persónuvernd.