18. desember 2023
18. desember 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Urriðaholtsstræti í Garðabæ
Brot 14 ökumanna voru mynduð í Urriðaholtsstræti í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í austurátt, að Dyngjugötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 214 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.
Vöktun lögreglunnar í Urriðaholtsstræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.