13. mars 2023
13. mars 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Urriðaholtsstræti í Garðabæ
Brot 74 ökumanna voru mynduð í Urriðaholtsstræti í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í austurátt, að Dyngjugötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökamanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.
Vöktun lögreglunnar í Urriðaholtsstræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.