Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. mars 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Stekkjarbakka í Reykjavík

Brot 177 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 633 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.