Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. mars 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Stekkjarbakka í Reykjavík

Brot 119 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 412 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tólf óku 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.