Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. ágúst 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Stakkahlíð í Reykjavík

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 121 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.