Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. september 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Stakkahlíð í Reykjavík

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, að Austurhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 124 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.