4. september 2023
4. september 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Stakkahlíð í Reykjavík
Brot 5 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 189 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.
Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.