Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. maí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Skógarseli í Reykjavík

Brot 93 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í suðurátt, að Ölduseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.