Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. september 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Skógarseli í Reykjavík

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Breiðholti í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í norðurátt, að Þverárseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 180 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli, en í nágrenni hans er Ölduselsskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.