Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. nóvember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Skipasundi í Reykjavík

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Skipasundi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipasund í norðurátt, á milli Holtavegar og Hólsvegar. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Skipasundi var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.