Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. nóvember 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Skeiðarvogi í Reykjavík

Brot 70 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, á móts við Vogaskóla. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 236 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.