Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Seljaskógum í Reykjavík

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Seljaskógum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljaskóga í suðurátt, að Ásaseli. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 182 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.