Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. september 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Safamýri í Reykjavík

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í suðurátt, að Starmýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.