Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. september 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Safamýri í Reykjavík

Brot 21 ökumanns var myndað í Safamýri í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.