Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. júní 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Safamýri í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, gegnt Framheimilinu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.