Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. júní 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Rofabæ í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 89 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.