12. maí 2011
12. maí 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Rofabæ í Reykjavík
Brot 27 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, gegnt Árbæjarskóla. Á fimmtíu mínútum, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók nánast helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.
Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið mjög hátt, eða 54-60% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 43-45 km/klst.