Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Rofabæ í Reykjavík

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, að Skólabæ. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.