Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Rofabæ í Reykjavík

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, í upphafi skóladags fyrir hádegi, fóru 216 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.