Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. september 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Rofabæ í Reykjavík

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.