28. maí 2015
28. maí 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Ölduseli í Reykjavík
Brot 6 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, að Ystaseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.