Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Ölduseli í Reykjavík

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, að Ystaseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.