Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Norðurfelli í Reykjavík

Brot 43 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í austurátt, að Gyðufelli. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71 (tveir ökumenn).

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.