Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Jónsgeisla í Reykjavík

Brot 38 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í vesturátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 175 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.